Laugardaginn 16. febrúar opnar sýningin F U R A H A á VeggVerki.

Það eru nemendur úr Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri sem sýna undir stjórn Hlyns Hallssonar.

“Í hröðu samfélagi nútímans er auðvelt að falla í þá gryfju að búa til verk sem lituð eru af neikvæðum fréttaflutningi fjölmiðla og drama lífsins.Okkur langaði að taka annan pól í hæðina og búa til verk sem vakið gæti gleði og ánægju. Fyrir valinu varð Zebrahestur sem er einstakur í fegurð sinni og vekur einlæga gleði. Litum Zebrans vildum við samt breyta og fyrir valinu varð bleikur og hvítur, sem í okkar huga er tákn frelsis og gleði.”

Veitingar og GLEÐI í galleriBOXi klukkan 16:00 Sýninginn stendur til 9. mars 2008.

Allir VELKOMNIR