Margeir Dire Sigurðarson

 
 

Absorbism.

Verkið er unnið með blandaðri tækni sem ég er enn ad þróa. Í vinnslu reyni eg að túlka sama hlutinn á marga mismunandi
hætti sem blandast saman med tímanum. Í upphafi er óhlutbundin teikning með einni línu yfir allan flötinn,
sem orsakar að öll form verksins tengjast. Myndina læt ég svo sitja um óákveðin tíma og les út úr formunum og
nýti allt sem ég sé, heyri og upplifi í mínu daglega lífi til að búa til eina heilsteypta sögu í verkinu.
Þegar sagan er hálfmótuð tjái ég hana með litum og fikra hægt að figuratifri útfærslu.
Söguna er svo fyrir hvern og einn ad lesa úr.


Margeir Dire Sigurðason útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2008 og er búsettur i Madrid þessa dagana.
Margeir hefur sýnt verk sin síðan hann man eftir sér og út um allar tryssur. Þar á meðal Akureyri, Reykjavik, Lahti (finnlandi), Barcelona, Alicante (spáni) og New york