Framundan - Upcoming

Umfjöllun í fjölmiðlum - Media publication

VeggVerk:
VeggVerk er heiti á sýningarrými sem er á vesturhlið Strandgötu 17 á Akureyri.
Vegfarendum er velkomið að fylgjast með listafólkinu við iðju sýna. Verður það jafnvel í einhverjum tilfellum gefið út hvenær áætluð listsköpun muni eiga sér stað svo að fólk missi ekki af viðburðinum.
Eigandi hugmyndarinnar er Hallur Gunnarsson sem starfrækir VeggVerk. Akureyrarbær á húsið og hefur VeggVerk fengið vesturhliðina til afnota.

Opnunartími:
VeggVerk er opið allan sólarhringinn og er aðgangur ókeypis.

Ummál VeggVerks:
Veggurinn er um 9,6 metrar á breidd, 6 metrar á hæð þar sem hann er hæðstur en 3,7 þar sem hann er lægstur. Kassinn vinstra megin er um 3,5 metrar á breidd og 3,7 metrar á hæð. Sjá n

Netfang: veggverk@gmail.com

Bakvið VeggVerk - Behind VeggVerk

Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Sýningarstjóri - Projectionist
08.2007 - 10.2009

Hallur Gunnarsson
Hugmyndasmiður - Founder
Sýningarstjóri - Projectionist

Jóna Hlíf er fædd árið 1978 í Reykjavík og býr og starfar á Akureyri. Hún stundaði nám við Myndlistarskólann á Akureyri á árunum 2002-2005 og útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art í júní 2007. Hún rekur einnig GalleríBOX á Akureyri ásamt fleirum. Nánari upplýsingar um Jónu og verk hennar er að finna á heimasíðunni www.jonahlif.com
Frekari upplýsingar um GalleríBOX er að finna á
www.galleribox.blogspot.com.

Hallur er fæddur árið 1976 á Akureyri og á hugmyndina að VeggVerki. Hann er útskrifaður með Bs. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2004. Hann lauk námi til kennsluréttinda frá sama skóla árið 2006. Hallur býr og starfar á Akureyri.