|
STYRKUR 24.01 - 07.03.2009
Níu manna hópur úr listhönnunardeild Myndlistarskólans á Akureyri sýnir veggverkið Styrkur. Verkið er þrívíddarverk með skírskotun í tölvuleikinn vinsæla Super Mario Bros.
Sveppurinn í tölvuleiknum, sem verkið byggist á, gefur einmitt leikendum aukinn styrk, og þaðan er nafn verksins runnið.
Markmiðið með verkinu er að skapa eitthvað myndrænt og táknrænt sem jafnframt á skírskotun í nútímann. Með verkinu viljum við líka gefa þeim sem þess njóta aukinn styrk á þessum erfiðu tímum sem nú eru uppi.
Opnunarpartý í tilefni af sýningu verksins verður haldið í Gallerí Box, Kaupvangsstræti 10, laugardaginn 24. janúar kl. 20.00. Allir VELKOMNIR.
Hópurinn:
Aldís María Valdimarsdóttir Ásta Rut Björnsdóttir Berglind H Helgadóttir Dagrún Íris Sigmundsdóttir Guðrún Huld Gunnarsdóttir Helgi Vilberg Helgason Karen Lind Árnadóttir Sindri Smárason Unnur Jónsdóttir
Verkefnastjóri: Jóna Hlíf Halldórsdóttir
|